Hoppa yfir valmynd
Kærunefnd útlendingamála

Nr. 417/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 12. júlí 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 417/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23060151

 

Beiðni um frestun réttaráhrifa í máli […]

 

Málsatvik

Hinn 8. júní 2023 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 15. mars 2023, um að synja […], fd. […], ríkisborgara Rússlands, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Úrskurður kærunefndar var birtur fyrir aðila hinn 9. júní 2023. Hinn 15. júní 2023 barst kærunefnd beiðni aðila um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar. Hinn 23. júní 2023 barst kærunefnd greinargerð aðila.

Aðili krefst þess að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála verði frestað á meðan hún fer með mál sitt fyrir dómstóla, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Málsástæður aðila

Aðili byggir beiðni sína um frestun réttaráhrifa á því að hún hyggist bera ákvörðun Útlendingastofnunar, sem staðfest hafi verið með úrskurði kærunefndar, undir dómstóla. Í greinargerð aðila kemur fram að verði ekki fallist á frestun réttaráhrifa í máli hennar muni það valda henni óafturkræfum skaða. Aðili byggir beiðni sína á 70. gr stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Aðili byggir á því að verði henni brottvísað áður en meðferð á máli hennar ljúki muni hún ekki eiga raunhæft úrræði til þess að bera ákvörðun stjórnvalda undir dómstóla. Aðili byggir í fyrsta lagi á því að framkvæmd úrskurðarins muni valda henni óafturkræfum skaða og vísar til fyrri greinargerða talsmanns þar sem fjallað sé ítarlega um væntanlegar aðstæður aðila í Rússland, m.t.t. stríðsins í Úkraínu. Í öðru lagi byggir aðili á því að henni muni reynast erfitt að eiga í sambandi við lögmann sinn hér á landi enda sé alls óvíst um hvort hún muni eiga kost á því að vera í netsambandi sem væri eina raunhæfa leiðin fyrir hana til þess að eiga í samskiptum við lögmann sinn.

Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í íslenskum rétti gildir sú meginregla að málskot til dómstóla frestar ekki réttaráhrifum endanlegra ákvarðana stjórnvalda, sjá til hliðsjónar 2. málsl. 60. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Reglan er áréttuð í 1. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 en þar segir að málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun á stjórnsýslustigi um að útlendingur skuli yfirgefa landið fresti ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála, sem er sjálfstæð stjórnsýslunefnd, þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess, sbr. 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestun á réttaráhrifum skal bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að málið hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Niðurstaða um hvort ástæða sé til að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar ræðst af heildstæðu mati á hagsmunum aðila af því að réttaráhrifum úrskurðarins verði frestað og sjónarmiðum sem mæla gegn slíkri frestun. Meðal þeirra sjónarmiða sem líta verður til við þetta mat er hvort framkvæmd úrskurðarins valdi aðila óafturkræfum skaða, hvort framkvæmdin feli í sér verulegar hindranir á aðgengi aðila að dómstólum, hvort aðstæður sem þýðingu geta haft fyrir málið hafi breyst verulega eða hvort þörf sé á sérstakri varúð, m.a. með tilliti til hagsmuna barna. Þá lítur kærunefnd til þess hlutverks stjórnvalda að tryggja skilvirka framkvæmd laga um útlendinga. Kærunefnd hefur jafnframt litið til þess að heimild til frestunar réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar er undantekning frá meginreglu sem aðeins sé ætlað að ná til tilvika þar sem ástæða er til þess að fresta framkvæmd. Réttaráhrifum úrskurðar verði því ekki frestað af þeirri ástæðu einni að úrskurðurinn verði borinn undir dómstóla heldur þurfa að liggja fyrir tilteknar ástæður í fyrirliggjandi máli svo kærunefnd fallist á slíka beiðni.

Af beiðni aðila um frestun réttaráhrifa má ráða þá afstöðu hennar að framkvæmd úrskurðar kærunefndar útlendingamála um að hún skuli yfirgefa landið takmarki möguleika hennar til að fá endurskoðun úrskurðarins hjá dómstólum og njóta þar réttlátrar málsmeðferðar, sbr. 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar. Ljóst er að vera aðila á landinu er ekki forsenda fyrir því að mál sem hún höfðar til ógildingar á úrskurði kærunefndar sé tækt til meðferðar hjá dómstólum. Þá hefur aðili möguleika á að gefa skýrslu fyrir dómi þótt hún sé ekki hér á landi, sbr. 2. mgr. 49. gr. og 3. og 4. mgr. 51. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Af gögnum um heimaríki aðila er ljóst að rússnesk stjórnvöld bæla í sífellt auknum mæli, niður andóf og mótmæli. Stjórnvöld hafi vegið að tjáningarfrelsi með lokun vefmiðla og verulegum takmörkunum á fjölmiðlafrelsi. Þrátt fyrir það verður ekki talið að slíkar aðgerðir komi í veg fyrir að kærandi geti átt samskipti við lögmann sinn hér á landi í gegnum síma og/eða samskiptaforrit. Í því ljósi og með vísan til aðstæðna aðila að öðru leyti er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé ástæða til að fresta réttaráhrifum úrskurðar í máli aðila á þeim grundvelli að framkvæmd úrskurðarins valdi tjóni á málatilbúnaði hennar fyrir dómstólum eða skerði réttindi sem henni eru tryggð samkvæmt 70. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. einnig dóma Héraðsdóms Reykjavíkur í málum nr. E-2434/2017, frá 23. maí 2018, og E-6830/2020, frá 15. desember 2020. 

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála hefur verið tekin afstaða til málsástæðna aðila varðandi umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða og komist að niðurstöðu um að synja umsókn hennar. Kærunefnd ítrekar það sem kemur fram í úrskurði í máli aðila að athugun nefndarinnar hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að ætla að aðstæður í heimaríki séu þess eðlis að endursending aðila þangað sé í andstöðu við 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Í samræmi við framangreint er það jafnframt mat kærunefndar að aðili eigi ekki á hættu að verða fyrir óafturkræfum staða snúi hún aftur til heimaríkis.

Tiltölulega skammur tími er liðinn síðan nefndin úrskurðaði í máli aðila. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að aðstæður aðila eða aðstæður í ríkinu, sem vísa á aðila til, hafi breyst verulega síðan nefndin úrskurðaði í málinu á þann hátt að nefndin telji að það gæti haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Eftir skoðun á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa telur kærunefnd að athugasemdir sem þar koma fram séu ekki þess eðlis að ástæða sé til að ætla að niðurstaða kærunefndar í málinu séu haldin annmörkum sem leitt gæti til ógildingar úrskurðarins.

Samkvæmt framansögðu er ekki ástæða til að fallast á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa úrskurðar kærunefndar.

 

 

Úrskurðarorð:

Beiðni aðila er hafnað.

The appellants request is denied.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir, settur varaformaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum